miðvikudagur, desember 07, 2005

Jamm og jæja þá er það pólitíkin

Veit ekkert hvort þið munið nenna að lesa þetta, er ekkert of viss um það but here it goes.

Ég er búinn að lýsa því yfir hér áður að ég sé samfylkingamaður og skammast mín ekkert fyrir það, ég er meira að segja í stjórn Ungra Jafnaðarmanna og hef brennandi áhuga á pólitík og öllu sem því við kemur. Fram að þessu hausti hef ég ekkert verið eitthvað rosalega aktívur í póltísku starfi, aðeins komið nálægt því. Ég hef haft mjög gaman að því að rökræða pólitik við vini mina og fólk sem er í kringum mig.

Það að ég sé samfylkingamaður og starfi innan þess flokks liggur það í loftinu að sé á móti núverandi ríkisstjórn og mun ég ekkert draga dul á það. Mér finnst kominn tími til að stjórnvöld sem hafa hagað sér með þeim hætti eins og núverandi ríkistjórn hefur gert, dragi sig í hlé. Þeir eru búnir að vera við völd of lengi og eru hættir að sjá út fyrir kassann. Gott dæmi er öryrkjamálið, ok þetta er kannski orðið þreitt en samt, það hvernig öryrkjar hafa það í þessu landi er okkur til skammar. Við montum okkur að því að vera svo rosalega rík og allt sé í svo miklum blóma......djö kjaftæði alltaf hreint. Það að þessi ríkistjórn skuli ekki sjá sóma sinn í því að þeir sem eiga erfitt í þessu landi skuli getað lifað sómasamlega er ekket annað en hræsni í ljósi þess að þeir eru að henda tugum ef ekki hundruðum milljóna í sendiráð hingað og þangað um heiminn en geta ekki búið þessum hópi fólks almennileg lífsskjör.

Og síðan er það blessaðu eldri borgarar þessa lands. Fólk sem hefur komið þessu landi á þann stað sem það er, útúr moldarkofunum, það er látið dúsa á elli/hjúkrunarheimilum sem eru ekki einu sinni rottum samboðið. Hvað er það bara að Amma mín þurfi að búa til kleinur og selja til þess að hafa salt í grautinn, manneskja sem er búin að vinna allt sitt líf.

Ein besta vinkona mín er 2gja barna móðir, hún er einstæð. Þessi manneskja er ein af þeim sem eiga alla mína virðingu skilið og ég dáist að henni og það kemur ríkistjórninni ekki rassgat við. Hún er eins og áður sagði 2gja barna móðir og hún er í skóla en það er ekki mikið meira en það sem hún getur gert og hún gerir það bara á dugnaðinum og hörkunni einni saman, því að hún vil og ætlar að læra það sem hún vill og fær hún ekki mikinn stuðning frá yfirvöldum til þess, heldur er það dugnaður og kraftur sem einkennir hana.

En það eru ekki allir jafn heppnir og hún, það eru dæmi þess að einstæðar mæður eru á götunni með börn sín, þurfa að leita til hjálparstofnana um hver mánaðarmót til þess að geta lifað af, jafnvel að ganga svo langt að fara í viðtal við DV til þess að vekja athygli á sínum aðstæðum, þær fá hvergi fyrirgreiðslu.

Starfsfólk í leikskólum og umönnunarstörfum eru að vinna ein þau mikilvægustu störf sem unnin eru í þessu landi og fólk er ekki að vinna þar vegna góðra launa, fólk er að vinna þessi störf af hugsjón og af ánægju, ég þekki það af eigin raun. Ég er að vinna á leiksskóla aðra hverja viku, það er tekinn af mér fullur skattur og ég er að fá 28.000 útborgað, ef ég væri ú fullu starfi og með skattkort væri ég að fá í hendurnar um 90.000. kr. Fyrir fullt starf. Móðir mín er að vinna við ummönnun eldri borgara, eftir 18 ár í starfi er hún að fá 70.000 + í hendurnar, reyndar fyrir 65% starf en samt.....18 ára óeigngjarnt starf.

Með þessu er ég ekki að segja að það sé allt ómulegt í þessu landi, ég hef það fínt að mörgu leyti og við megum vera þakklát fyrir margt en það að að ein ríksta þjóð í heimi skuli ekki sjá sóma sinn í því að allir skuli vera jafnir óháð kyni, aðstöðu,litarhætti heldur eingöngu hyggla þeim sem eru vel stæðir nú þegar og bilið milli ríkra og fátækra gerir ekkert nema að stækka, er til háborinnar skammar.

Það er kominn tími á breytinga og samfylkingin er það afl sem mun gera það. Nú er mikið rætt um að Ingibjörg Sólrún sé óhæfur formaður og sé að sigla flokknum í strand, við þá sem halda þessu fram vil ég aðeins segja þetta. talið um það sem þið hafið vit á. Það eru 18 mánuðir til alþingiskosninga og þá mun flokkurinn sína yfirburðastöðu sína. Sjálfstæðisflokkurinn var í nækvæmlega sömu stöðu í skoðunarkönnunum rétt eftir að Davíð tók við, það tók hann tíma til þess að ná að skerpa á hlutunum, nú er komið að okkur.

Þetta mun verða áframhaldandi hjá mér, ég mun framvegis skrifa um pólitík og mínar hugsjónir hér, ekki eingöngu heldur þegar við á. Einnig mun ég á næstu dögum kynna hver ég er og mínar hugsjónir. Það sem fram kemur hér að ofan er eingöngu það sem er á allra vörum og þar af leiðandi ekki eitthvað sem er bundið við mig. Næsti pistill mun fjalla um framsókn og Halldór Ásgrímsson, mann sem situr sen forsætisráðherra, forsætisráðherra sem er með formaður í flokki sem er með 11% fylgi. Það myndi hvergi annarstaðar ganga upp í vestrænu lýðræðislandi

Þannig að

Stay tuned

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

AMEN... ... ... sammála ÖLLU sem þú skrifaðir. maður þarf að fara að kynna sér þessi mál betur, það þýðir ekkert að búa í þessu landi og sitja svo bara á rassgatinu og hugsa um hvað þessir gömlu kallar eru að skíta í brækurnar heldur verður maður að láta í sér heyra! ég tek upp hanskann fyrir þér Matti minn, það er kraftur í kallinum :) keep up the good work

Nafnlaus sagði...

já þetta var semsagt ég, MARTA, sem skrifaði þetta komment. afsakið.

Matthías Freyr Matthíasson sagði...

Fr.Ra

Afhverju sérðu það ekki fyrir þér að samfylkingin muni breyta þessu? Það gefur augaleið að breytingar munu eiga sér stað þegar nýtt fólk kemur til valda. Þannig er það bara.