þriðjudagur, desember 30, 2003

Já maður gleymir hlutunum, Gleðilega hátið.

Ég er búinn að vera á fullu við að finna ákveðna manneskju. Þessi manneskja setti af stað undirskriftarlista í sambandi við stöðu mála hjá Leiklistarskólanum

Og loksins eftir að vera búinn að birta hjálparbeiðnir um allt net, á malefnum alvaran huginn blaðamannafélagið

að þá loksins birtist svar í neteyðimörkinni, einhver snilli á huganum gaf mér link á bloggið hjá þessari ágætu manneskju Lilja

Ástæða þess að ég var að leita að henni, er sú að eftir að hafa sent þetta bréf sem ég setti hér inn í fyrradag, til allra fjölmiðla, birta það á öllum netmiðlum og allra alþingismanna að þá svaraði mér ágætur maður og fyrir tilstuðlan hans að þá er ég að fara hitta fólk í menntamála nefnd alþingis, og ég ætlaði að reyna að fá þessa ágætu stelpu til að koma með og virðist það ætla að ganga eftir.

Stay tuned

Engin ummæli: